Spes frá Stóra-Hofi (8.03) kastaði gullfallegri fífilbleikri hryssu 19.maí sl. sem er í eigum Leifs og Röggu. Nú eru þrjár hryssur kastaðar og er kynjahlutfallið óvenju hagstætt. Spes er sjálf mikil beauty-bomba (8.53 fyrir byggingu) og virðast þau fjögur afkvæmi hennar sem komin eru bera þess merki. Nú er að leggjast undir feld og ákveða á fund hvaða stóðhests Spes fer næst :)
Jæja, annað folald mætt á svæðið! Það var Hnáta frá Hábæ (8.18) sem kom með brúna hryssu undan meistara Stála frá Kjarri. Hrikalega gaman að fá hryssu undan henni Hnátu en hennar fyrstu þrjú afkvæmi voru hestar ;) Hún er fíngerð og flott sú stutta. Afkvæmi Hnátu eru skemmtileg og forvitin, þessi var ekkert öðruvísi, kom og heilsaði upp á okkur! Dagfari frá Eylandi fór í fjórgang og tölt á nýafstöðnu Reykjavíkurmeistaramóti ásamt Bylgju Gauksdóttur sem hefur séð um þjálfun hans. Þau stóðu sig með mikilli prýði og uppskáru B-úrslit í tölti opnum flokki en voru rétt fyrir utan úrslit í fjórgang. Aldeilis góð byrjun hjá þessu flotta pari. En Dagfari er aðeins á sjötta vetur undan Veru okkar og Aroni frá Strandarhöfði. Hrafntinna er efnileg hryssa á fjórða vetur undan Byr frá Mykjunesi og Hrafnsdótturinni Hrafnadís frá Hofi. Hún byrjar sína tamningu vel en hún var frumtamin ásamt þjálfuð af Hennu Siren sem hefur farið það vel úr hendi. Hún er sameign Davíð, Matthías og Leifs. Hrafntinna er afar þroskað og vel gert tryppi, alhliða hryssa sem virðist hafa upp á margt að bjóða. Verður gaman að fylgjast með henni næstu vikurnar og sjá hvernig hún þróast. Vorið er komið með öllu tilheyrandi eða það vonum við, alveg komið nóg af klaka og snjó. Hattur og Siggi spókuðu sig í vorblíðunni um helgina.. Nokkrar myndir fylgja :) En með vorinu koma skemmtilegir tímar! Aðeins um 4 vikur í fyrstu folöldin, grundirnar fara að grænka, kynbótasýningar og keppnir framundan! Fyrstu afkvæmi "fjölskyldustóðhestsins" Byrs frá Mykjunesi eru nú í tamningu en Byr var notaður lítillega 2009 en flest afkvæmin eru frá þeim bræðrum á Fornusöndum í Austur-Landeyjum. Axel Geirs á þar af tvö bráðflink og falleg tryppi undan Byr sem gaman verður að fylgjast með. Það eru þau Mist og Atli frá Fornusöndum. Þau fóru í byggingardóm hjá ráðunautnum Kristni Huga nú á dögunum á Ræktunardögum Andvara og hlutum bæði um 8.25-8.30 fyrir byggingu. Ekki nóg að þau séu nokkuð falleg heldur eru þau bráðflink. Verður gaman að fylgjast með þeim á næstu misserum. Vonin okkar byrjar vel en hún er undan Fjarka frá Breiðholti og Andvaradótturinni Venus frá Ey I. Hún er ræktuð af vinum okkar, þeim Gunnari og Berglindi á Ey I en hefur verið í okkar eigu síðan hún var folald. Von er algjör snilldarhryssa - næmi klárhryssa með feikna hreyfingu og einhvern x-factor. Hún er ung að aldri, á fimmta vetur en mikið þroskuð og flott. Skvísan er í þjálfun hjá Bylgju Gauks og þær stöllur flottar saman. Dagfari frá Eylandi er klárhestur undan Veru frá Ingólfshvoli og heiðursverðlauna- hestinum Aron frá Strandarhöfði. Hann hefur meira og minna verið í þjálfun og góðu atlæti hjá Bylgju Gauksdóttur frá upphafi en hann er á sjötta vetur. Efnishestur sem stefnt er með í keppni. Þau Duld frá Eylandi og Kraflar frá Mykjunesi eru bæði að stíga sín fyrstu skref í tamningu og eru bara lofandi alhliðahross a fjórða vetur bæði tvö. Kraflar er undan Elju frá Þingeyrum og Keilir frá Miðsitju, hann byrjar vel. Mikil fótaburður og góðar gangtegundir, þarfnast gangsetningar og er að taka sín fyrstu skref inn í töltið. Duld er fíngerð og flink undan Hróð frá Refstöðum og Glóðarsdótturinni Draumsýn frá Minni-Borg. Hún er jákvæð og mikil mýkt í henni, allur gangur galopin og geðslagið ljúft. Þau voru frumtamin í haust og hafa nú verið inni til viðbótar í mánuð hjá Bylgju Gauksdóttur í tamningu. |
|