EYLAND
  • HEIMA
  • UM OKKUR
  • HRYSSUR
    • Viðja frá Meiri-Tungu
      • Hnáta frá Hábæ
        • Hátíð frá Fellskoti
          • Vera frá Ingólfshvoli
            • Karen frá Árbæ
              • Spes frá Stóra-Hofi
                • Elja frá Þingeyrum
                  • Móna frá Skarði
                    • Perla frá Hólshúsum
                      • Hrafndís frá Hofi
                      • STÓÐHESTAR
                        • Hattur frá Eylandi
                          • Dagfari frá Eylandi
                            • Tími frá Mykjunesi
                              • Hákon frá Ragnheiðarstöðum
                                • Klettur frá Hvammi
                                • FOLÖLD
                                  • Tindur frá Eylandi
                                    • Hrafn frá Eylandi
                                      • Spegill frá Eylandi
                                        • Katla frá Eylandi
                                          • Pála frá Eyland
                                            • Hrafnfinna frá Mykjunesi
                                              • Byrjun frá Mykjunesi
                                                • Herdís frá Holtsmúla
                                                  • Ætlun frá Holtsmúla
                                                  • TRYPPI
                                                    • Árgangur 2010
                                                      • Árgangur 2009
                                                        • Árgangur 2008
                                                          • Árgangur 2007
                                                            • Eldri hross
                                                            • AÐRIR HESTAR
                                                              • Keppnishestar
                                                                • Höfðingjar!
                                                                • FOR SALE
                                                                  • Stallions - NEW
                                                                    • Mares
                                                                      • Youngsters
                                                                      • KONTAKT
                                                                      • MYNDIR

                                                                      Anton frá Eylandi - IS2007184061 - SELDUR

                                                                      Picture
                                                                      Anton er fyrsta afkvæmi hennar Veru okkar frá Ingólfshvoli. Hann var hreyfingarmikið folald og álitlegt stóðhestsefni. Anton er undan heiðursverðlaunahestinum Hróð frá Refsstöðum og er nú hjá nýjum eigendum í Noregi. En það voru Stein Sorknes og fjölskylda í Lian sem festu kaup á honum vetur gömlum. Stein hefur haldið undir hann góðum hryssum og komu falleg folöld undan honum í sumar sem leið! Það verður gaman að fylgjast með honum í framtíðinni.! Myndin er af Antonsdóttur..


                                                                      F : Hróður frá Refsstöðum (8.39 - heiðursverðlaun fyrir afkvæmi)
                                                                      M : Vera frá Ingólfshvoli (8.26 fyrir hæfileika)
                                                                      BLUP : 115 


                                                                      Tími frá Mykjunesi II - IS2007186022 

                                                                      Picture
                                                                      Tími er undan Trú frá Auðsholtshjáleigu og Dögg frá Dalbæ. Tími er mjög lofthár og léttbyggður. Honum er laus gangur og hann fer fallega. Við höfum trú á Tíma og geltum hann því ekki. Dögg er undan ættmóðurinni Dóttlu frá Stóra-Hofi og Trostan frá Kjartansstöðum. Tími er sammæðra Kjarkssyninum Byr frá Mykjunesi en myndin hér fyrir neðan er af honum. Hægt er að lesa meira um stóra bróðurinn, Byr á síðunni hann HÉR.

                                                                      F : Trúr frá Auðsholtshjáleigu (8.35)
                                                                      M : Dögg frá Dalbæ 
                                                                      BLUP : 116

                                                                      Myndin var tekin í febrúar 2010 eftir tveggja mánaða tamningu..


                                                                      Ísold frá Mykjunesi II - IS2007286197

                                                                      Picture
                                                                      Ísold er afar efnileg alhliðahryssa sem er með frábærar gangtegundir. Hún er hágeng og geðgóð, fór mjög vel af stað í frumtamningu, þjál með allan gang. Virkilega spennandi tryppi. Hún er undan Dúkku frá Dalbæ sem er undan uppáhaldinu okkar, Gusti frá Grund og síðan ættmóðurinni á Mykjunesi, Dóttlu frá Stóra-Hofi. Faðir Ísoldar er gæðingurinn Klettur frá Hvammi. 

                                                                      F : Klettur frá Hvammi (8.49 - 1. verðlaun fyrir afkvæmi)
                                                                      M : Dúkka frá Dalbæ 
                                                                      BLUP : 111

                                                                      Á myndinni er Klettur frá Hvammi. Mynd af Ísold er væntanleg. 


                                                                      Hrafnkatla frá Mykjunesi II - IS2007286196 

                                                                      Picture
                                                                      Hrafnkatla er falleg alhliðahryssa undan gæðingnum Trú frá Auðsholtshjáleigu. Hún er fyrsta afkvæmi Hrafndísar frá Hofi sem fer í tamningu en hún er dóttir Hrafns frá Holtsmúla, þannig að það er Orra-Hrafns blanda í henni Hrafnkötlu. Hrafnkatla fór vel á stað í frumtamningu; þjál og geng. 


                                                                      F : Trúr frá Auðsholtshjáleigu (8.35)
                                                                      M : Hrafndís frá Hofi
                                                                      BLUP : 112

                                                                      Á myndinni er Hrafnkatla í snjónum í byrjun  febrúar eftir tæplega tveggja mánaða tamningu..


                                                                      Löpp frá Kambi - IS2007287463 

                                                                      Picture
                                                                      Löpp er spennandi klárhryssa undan Þrist frá Feti og tekur mikið eftir föður sínum; litfögur, hreyfingamikil og fext. Hún fór vel af stað í frumtamningu, virkilega jákvæð og góður gangur í henni með mikilli fótahreyfingu. Móðir Lappar er alhliðahryssan List frá Búðarhóli en sú hlaut meðal annars 9 fyrir háls/herðar/bóga og prúðleika. Löpp er úr ræktun frá góðum vini okkar, Hauk Haukssyni. 


                                                                      F : Þristur frá Feti (8.27 - 1. verðlaun fyrir afkvæmi)
                                                                      M : List frá Búðarhóli (7.86)
                                                                      BLUP : 106




                                                                      Myndin var tekin af Löpp haustið 2011 en hér er stutt video af henni.. 

                                                                      Create a free website with Weebly