Síðasta folald sumarsins leit dagsins ljós fyrir um viku síðan. Það var gullfalleg hryssa undan Viðju frá Meiri-Tungu III (8.21) og ungfolanum Hatt frá Eylandi (2009). Þessi litla skvísa er að sönnu mjög langþráð en við byrjuðum að halda Viðju sumarið 2009 og ekkert gekk né rékk fyrr en í sl sumar. Litla skvísan er alveg fullkomin - rauðskjótt blésótt. Það er aldeilis gaman að eiga afleggjara af henni Viðju en hún er hryssa með yfir 8.40 fyrir hæfileika og ma. fjórar níur! Faðirinn, Hattur er undan Álf frá Selfossi og Keilu frá Bjarnastöðum (8.34), virkilega spennandi foli!
Þær mæðgur er nú hjá Kolfinnssyninum og gæðingnum Andra frá Vatnsleysu.
Þær mæðgur er nú hjá Kolfinnssyninum og gæðingnum Andra frá Vatnsleysu.