Baldur er stór og myndarlegur Aronssonur undan Álfheiði-Björk frá Lækjarbotnum sem er klárhryssa með 1. verðlaun og meðal annars 9 fyrir brokk og stökk og 8.5 fyrir tölt, vilja og fegurð í reið. Baldur er hreyfingamikill, einstaklega skrefstór og stæðilegur foli. Baldur var byggingardæmdur í Víðidal 2009 og hlaut 8.06.
F : Aron frá Strandarhöfði (8.54 - heiðursverðlaun fyrir afkvæmi) FF : Óður frá Brún (8.34 - heiðursverðlaun fyrir afkvæmi) FM : Yrsa frá Skjálg (7.90 - sex 1. verðl afkvæmi) M : Álfheiður-Björk frá Lækjarbotnum (8.04) MF : Bliki frá Höskuldsstöðum MM : Hekla- Mjöll frá Lækjarbotnum (ósýnd - fimm 1.verðl afkvæmi)
Baldur er afar spennandi fjórgangari með fáséð fet og einnig frábært brokk og stökk. Hann er enn að styrkjast á tölti. Efni í verulega spennandi fjórgangara!