| EYLAND |
Þjórsá fer vel af stað.. 22/02/2012
![]() Þjórsá frá Eylandi - IS2008284082 Þjórsá er hryssa á fjórða vetur undan Aronssyninum Jakob frá Árbæ og Föl frá Ási sem á ættir að rekja til Feykirs frá Hafsteinsstöðum. Þjórsá fangaði strax augað sem folald og fór alltaf um á gangi með miklum fótaburði. Hún er nú búin að vera í tamningu hjá Bylgju Gauks og lofar góðu. Fíngerð og lipur hryssa! Læt nokkrar myndir fylgja með af Þjórsá og Bylgju á góðviðrisdegi í febrúar. Add Comment Ungviðið.. 18/02/2012
![]() Dagfari frá Eylandi - IS2008184082 Við erum með fjögur tryppi á fjórða vetur. Þar af eru tvö á Rauðalæk í góðu yfirlæti hjá Bylgju Gauks. Við fórum einmitt að kíkja á þau Dagfara og Þjórsá frá Eylandi hjá henni fyrir helgi. Bylgja frumtamdi þau í haust og síðan hafa þau verið í tamningu/þjálfun frá áramótum. Á myndinni er Dagfari frá Eylandi, stóðhestsefni á fjórða vetur undan Veru frá Ingólfshvoli og Aroni frá Standarhöfði. Mjúkur og hreyfingamikill hestur. Það er ótrúlega gaman að sjá hversu vel tamin og meðfærileg tryppin eru eftir dvölina hjá Bylgju. Flottar myndir! 26/01/2012
![]() Skjónurnar tvær! Við fengum þessar myndir sendar frá Heidi Korsch nýlega. En hún er stoltur eigandi Pálu frá Eylandi sem er undan Álfi frá Selfossi og Perlu okkar frá Hólshúsum. Heidi kom og kíkti á skvísuna í sumar og tók nokkrar myndir af stóðinu okkar á Eylandi. Ótrúlega skemmtilegar myndir hjá henni! Hér til hliðar eru þær mæðgur, Perla frá Hólshúsum og Álfsdóttirin Pála frá Eylandi. Endalaus snjór. 24/01/2012
Það er endalaus snjór á fróni og virðist það virðist lítið ætla að breytast. Við eins og aðrir hestamenn höfum þurft að gera ráðstafanir vegna þessa. Við byrjuðum að gefa mun fyrr en ella og tókum folöldin undan rétt eftir áramót. Hryssurnar foru fegnar að losna við gríslingana sem aldrei fyrr.. Það er um einn og hálfur mánuður síðan við tókum inn. Hrossin eru frekar ung þennan veturinn, ætli meðal aldurinn sé ekki um 5 vetra. En eitthvað er af efnistryppum, meira af því seinna. Við notuðum veðrið um helgina og tókum nokkrar myndir af Tíma Trúsyni sem er á fimmta vetur. Við höfum líka verið að "baxa" við það í "frítímanum" að koma hesthúsinu í stand á Eylandi. Nú erum við að klæða það að utan og ein mynd af því fylgir með. LOGO 14/01/2012
Fyrir um tveimur árum fórum við á stúfnana og létum hanna fyrir okkur logo. Eftir nokkrar vangaveltur, tilfæringar og léttan valkvíða er þetta logo niðurstaðan. Og við erum bara þræl ánægð með það!! Er bæði hægt að vera með það á dökkum og ljósum bakgrunni.. síðan er etv. planið að nota táknið sem frostmerki. En logoið nær vel utan um okkar starfsemi.. E fyrir Eyland, H fyrir hrossarækt og síðan má finna L og Y ef leitað er vel. Stílhreint og flott!! Heiðurinn af logoinu á Hallvarður hjá Zetor! Gleðilega hátíð.... 24/12/2011
Kæru vinir og hestamenn... Gleðilega jólahátíð og farsælt komandi ár. Megi jólin ykkar vera friðsæl og full af gleði. Þökkum liðnar stundir á árinu sem er að líða.. Með jólakveðju, Davíð & Rut Herdís Sæsdóttir 18/11/2011
![]() Herdís frá Holtsmúla Sær frá Bakkakoti hefur lengi vel verið í uppáhaldi hjá okkur en nýverið festum við kaup á álitlegu folaldi undan honum. Sú heitir Herdís og er frá Holtsmúla, ræktuð af Svanhildi Hall og Magga Lár. Að Herdísi stendur vel í báðar ættir en móðir hennar heitir Héla frá Ósi sem er 1.verðlauna klárhryssa sem státar ma. af 9 fyrir tölt, vilja, prúðleika og réttleika. Héla er undan Gusti frá Hóli og Fröken frá Möðruvöllum sem hefur gefið bunka af álitilegum hrossum. Sammæðra Herdísi okkar er stóðhesturinn Hrímnir frá Ósi sem eftirminnilega hlaut 9.5 fyrir tölt og brokk aðeins fimm vetra gamall. Er ekki gæðingsglampi í auga Herdísar..? Við vonum það að minnsta kosti. Þetta er það skemmtilega við hestamennskuna.. biðin og vonin :) Herdís fæddist rauð en er nú á góðri leið að verða grá eins og hún á kyn til. ![]() Gæðingurinn Gátt frá Dalbæ á LM2011 Ný líður að uppskeruhátíð með öllu tilheyrandi. Um helgina birtust tilnefningar yfir knapa ársins í hinum ýmsu flokkum. Siggi Matt, bróðir Davíðs er í hópi þeirra fimm kynbótaknapa sem tilnefndir eru. Hann er vel að því kominn og sýndi fjöldann allan af frábærum hrossum en efstir standa heimsmeistarinn Arnoddur frá Auðsholtshjáleigu, Máttur frá Leirubakka og fleiri. Siggi hefur í gegnum árin sýnt meiri part af okkar hryssum og undantekningalaust með frábærum árangri. Í ár sýndi hann fyrir okkur systurnar Hátíð frá Fellskoti og Karen frá Árbæ í 1.verðlaun. Fyljun sumarsins.. 19/10/2011
![]() Hnáta frá Hábæ Við héldum nokkrum hryssum í ár. Hestarnir sem urðu fyrir valinu á endanum voru af ýmsum toga, ungir sem aldnir.. vonarstjörnur og kynbótahestar sem nú þegar hafa sannað sig. Allt í bland.. Það gekk brösulega að fá fyl í sumar hryssunar og enn er ein hjá hesti, reyndar bara heima við en það er Viðja Markúsardóttir, skemmtileg hryssa með 8.21 í aðaleinkunn. Það er svolítið svekkelsi að ná ekki fyli í hana... en svona er það.., ekki er öll von úti. Hnáta frá Hábæ er fylfull við Vilmund frá Feti Vera frá Ingólfshvoli er fylfull við Byr frá Mykjunesi Karen frá Árbæ er fylfull við Krák frá Blesastöðum Elja frá Þingeyrum er fylfull við Mátt frá Leirubakka Hrafndís frá Hofi er fylfull við Álfi frá Selfossi Perla frá Hólshúsum er fylfull við Vilmund frá Feti Viðja frá Meiri-Tungu III er enn hjá Hatti frá Eylandi og verður sónuð bráðlega Frumtamningar.. 17/10/2011
Tamningar eru komnar á fulla ferð og tryppin orðin vel fær. Fjöldinn er orðin slíkur að við komumst ekki yfir öll tryppin sjálf svo að við fengum aðstoð frá Bylgju Gauks með tamningarnar. Hún vann frábæra vinnu og kenndi þeim vel grunninn. Nokkur álitleg tryppi eru í hópnum sem dæmi hann Dagfari frá Eylandi (2008), Veru- og Aronssonur. Dagfari er kattliðugur og samvinnufús. Hans forskóla er lokið í bili og Dagfari aftur farinn í hagann á Eylandi. Við tókum smá video af honum áður en honum var sleppt undir "read more". |
|